Skilmálar
Notkunarskilmálar Salarium
Skilmálar þessir gilda um notkun launakerfisins Salarium, sem MMV ehf., kt. 601102-2420, Lágmúla 5, 108 Reykjavík, á og rekur. Með því að stofna aðgang eða nota Salarium samþykkir viðskiptavinur skilmálana, ásamt vinnslusamningi og persónuverndarstefnu sem eru hluti af þeim.
1. Gildissvið og samþykki
1.1 Skilmálarnir gilda um alla notkun á Salarium, hvort sem er í prufuaðgangi eða gegn greiðslu.
1.2 Skilmálarnir eru samþykktir þegar viðskiptavinur stofnar aðgang, hakar við samþykki í kerfinu eða hefur notkun. Sá sem samþykkir fyrir hönd fyrirtækis staðfestir að hann hafi heimild til að skuldbinda það.
1.3 Salarium er ætlað fyrirtækjum og atvinnurekendum. Ákvæði laga um neytendavernd gilda því ekki um samninginn nema lög mæli fyrir um annað.
1.4 Eftirfarandi skjöl eru hluti af skilmálunum: vinnslusamningur, persónuverndarstefna og gildandi verðskrá. Stangist þau á gengur vinnslusamningurinn framar um vinnslu persónuupplýsinga, en að öðru leyti gilda skilmálar þessir.
2. Skilgreiningar
| Hugtak | Merking |
|---|---|
| MMV | MMV ehf., sem á og rekur Salarium. |
| Salarium eða þjónustan | Launakerfið Salarium, aðgengilegt á app.salarium.is, ásamt tengdri virkni, uppfærslum og aðstoð. |
| Viðskiptavinur | Fyrirtæki eða atvinnurekandi sem gerir samning um notkun Salarium. |
| Notandi | Einstaklingur sem viðskiptavinur veitir aðgang að Salarium í sínu nafni. |
| Gögn viðskiptavinar | Allar upplýsingar sem viðskiptavinur eða notendur hans skrá í Salarium, þ.m.t. upplýsingar um starfsmenn. |
| Áskrift | Samningsbundinn aðgangur að Salarium gegn greiðslu samkvæmt verðskrá. |
3. Aðgangur og notendur
3.1 Viðskiptavinur ákveður hverjir fá aðgang og með hvaða réttindum, og ber ábyrgð á allri notkun sem fer fram undir hans aðgangi.
3.2 Innskráning fer fram með rafrænum skilríkjum eða tveggja þátta auðkenningu. Notendur mega ekki deila innskráningu sinni með öðrum.
3.3 Viðskiptavinur skal tilkynna MMV án tafar á personuvernd@salarium.is ef grunur er um óheimilan aðgang, og loka strax fyrir aðgang notenda sem hætta störfum.
3.4 MMV getur lokað tímabundið fyrir aðgang ef grunur er um misnotkun, öryggisógn eða verulegt brot á skilmálunum. MMV tilkynnir viðskiptavini um lokunina og ástæðu hennar svo fljótt sem unnt er.
4. Þjónustan, breytingar og rekstraröryggi
4.1 Salarium reiknar laun, býr til launaseðla, skilagreinar vegna staðgreiðslu og lífeyrissjóða og launamiða, og getur búið til drög að færslum í bókhaldskerfi. Nánari lýsing á virkni er á www.salarium.is.
4.2 MMV uppfærir útreikninga þegar breytingar á lögum, reglum eða prósentum taka gildi, eftir því sem kostur er áður en þær hafa áhrif á launakeyrslur.
4.3 MMV þróar Salarium áfram og getur breytt, bætt við eða fellt niður virkni. Verði veruleg virkni felld niður tilkynnir MMV það með minnst 30 daga fyrirvara.
4.4 MMV leitast við að hafa Salarium aðgengilegt allan sólarhringinn en ábyrgist ekki samfellda eða villulausa virkni. Fyrirhugað viðhald fer að jafnaði fram utan hefðbundins vinnutíma og er tilkynnt fyrir fram þegar það varðar mánaðamót.
4.5 Aðstoð er veitt í gegnum mmv@mmv.is og í síma 786 2800 á virkum dögum kl. 9–16.
5. Skyldur viðskiptavinar
5.1 Viðskiptavinur ber ábyrgð á því að upplýsingar sem hann skráir séu réttar og fullnægjandi, svo sem laun, kjarasamningar, lífeyrissjóðir, stéttarfélög og persónuafsláttur starfsmanna.
5.2 Viðskiptavinur skal yfirfara launakeyrslur, launaseðla, skilagreinar og bókhaldsfærslur áður en hann samþykkir þær, greiðir laun eða sendir skil. Salarium er verkfæri; viðskiptavinur er áfram launagreiðandi og ber ábyrgð gagnvart starfsmönnum, Skattinum og lífeyrissjóðum.
5.3 Viðskiptavinur ber ábyrgð á því að skil og greiðslur berist á réttum tíma. Hann skal tilkynna MMV án tafar ef hann verður var við villu í útreikningum.
5.4 Viðskiptavinur skal ekki:
- nota Salarium í ólögmætum tilgangi eða fyrir aðra en sjálfan sig, nema um það sé samið (t.d. bókhaldsstofur);
- reyna að komast fram hjá öryggisráðstöfunum, prófa veikleika eða nálgast gögn annarra viðskiptavina;
- afrita, endurselja eða bakþýða kerfið, eða leggja óeðlilegt álag á það.
6. Verð, greiðslur og vanskil
6.1 Verð fer eftir gildandi verðskrá á hverjum tíma. Öll verð eru án virðisaukaskatts.
6.2 Áskrift er innheimt mánaðarlega fyrir fram með reikningi eða kröfu í heimabanka. Gjalddagi er útgáfudagur reiknings og eindagi 14 dögum síðar.
6.3 Prufuaðgangur, ef hann er í boði, er gjaldfrjáls í þann tíma sem tilgreindur er við skráningu og breytist ekki í áskrift nema viðskiptavinur velji það.
6.4 Sé reikningur ekki greiddur á eindaga reiknast dráttarvextir samkvæmt lögum nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu. Sé reikningur ógreiddur 30 dögum eftir eindaga getur MMV, að undangenginni skriflegri viðvörun, takmarkað aðgang við lestur og útflutning gagna þar til skuldin er greidd.
6.5 MMV getur breytt verðskrá með minnst 60 daga fyrirvara. Viðskiptavinur getur þá sagt áskrift upp áður en breytingin tekur gildi.
7. Persónuvernd og gögn
7.1 Viðskiptavinur á gögn sín. MMV fær aðeins þann rétt til að nota þau sem þarf til að veita þjónustuna.
7.2 Þegar viðskiptavinur skráir persónuupplýsingar um starfsmenn sína í Salarium er hann ábyrgðaraðili og MMV vinnsluaðili. Um þá vinnslu gildir vinnslusamningur Salarium, sem er hluti af skilmálum þessum.
7.3 Um vinnslu MMV á upplýsingum um tengiliði viðskiptavinar og notendur gildir persónuverndarstefna Salarium.
7.4 Viðskiptavinur getur hvenær sem er flutt gögn sín út úr Salarium, m.a. á PDF- og Excel-sniði. Um afhendingu og eyðingu gagna við lok samnings fer samkvæmt kafla 12 í vinnslusamningnum.
7.5 MMV má nota ópersónugreinanleg, samantekin gögn um notkun til að reka og bæta þjónustuna.
8. Ábyrgð og takmörkun ábyrgðar
8.1 MMV ber ábyrgð á því að Salarium reikni í samræmi við gildandi lög og reglur, miðað við þær upplýsingar sem viðskiptavinur skráir. Komi í ljós villa í útreikningum sem rekja má til kerfisins leiðréttir MMV hana án endurgjalds svo fljótt sem unnt er.
8.2 MMV ber ekki ábyrgð á tjóni sem rekja má til:
- rangra eða ófullnægjandi upplýsinga frá viðskiptavini;
- þess að viðskiptavinur yfirfór ekki launakeyrslur, skil eða bókhaldsfærslur áður en hann samþykkti þær;
- tafa eða truflana hjá þriðju aðilum, svo sem Skattinum, lífeyrissjóðum, bönkum eða auðkenningarþjónustu;
- óviðráðanlegra atvika (force majeure).
8.3 MMV ber ekki ábyrgð á óbeinu tjóni, svo sem rekstrarstöðvun, tapaðri framlegð, glötuðum hagnaði eða kröfum þriðju aðila.
8.4 Heildarábyrgð MMV vegna samningsins, af hvaða ástæðu sem er, takmarkast við fjárhæð sem nemur áskriftargjöldum sem viðskiptavinur greiddi á síðustu 12 mánuðum áður en tjónsatburður varð.
8.5 Takmarkanir í 8.2–8.4 gilda ekki um tjón sem MMV veldur af ásetningi eða stórfelldu gáleysi, og ekki að því marki sem ófrávíkjanleg lög mæla fyrir um annað.
8.6 Krafa um skaðabætur skal sett fram skriflega innan 6 mánaða frá því að viðskiptavinur varð eða mátti verða tjónsins var.
9. Hugverkaréttindi
9.1 MMV á öll réttindi að Salarium, þ.m.t. hugbúnaði, hönnun, vörumerki og skjölum. Viðskiptavinur fær óframseljanlegan afnotarétt á gildistíma samningsins, eingöngu til eigin nota.
9.2 Ábendingar og tillögur viðskiptavinar um þróun Salarium má MMV nýta án endurgjalds.
9.3 Ekkert í skilmálunum veitir MMV eignarrétt að gögnum viðskiptavinar.
10. Gildistími og uppsögn
10.1 Samningurinn er ótímabundinn og gildir frá því að viðskiptavinur samþykkir skilmálana.
10.2 Viðskiptavinur getur sagt áskrift upp með eins mánaðar fyrirvara miðað við mánaðamót. Uppsögn skal send á mmv@mmv.is eða gerð í kerfinu. Fyrirframgreidd gjöld eru ekki endurgreidd.
10.3 MMV getur sagt samningnum upp með þriggja mánaða fyrirvara miðað við mánaðamót.
10.4 Hvor aðili getur rift samningnum fyrirvaralaust ef hinn aðilinn vanefnir hann verulega og bætir ekki úr innan 30 daga frá skriflegri áskorun.
10.5 Við lok samnings getur viðskiptavinur flutt út gögn sín í 90 daga. Að þeim tíma liðnum er gögnum eytt innan 30 daga, sbr. kafla 12 í vinnslusamningi, nema lög krefjist lengri varðveislu.
11. Breytingar á skilmálum
11.1 MMV getur breytt skilmálunum. Verulegar breytingar eru tilkynntar viðskiptavinum með tölvupósti og í kerfinu með minnst 30 daga fyrirvara.
11.2 Haldi viðskiptavinur áfram notkun eftir að breyting tekur gildi telst hann hafa samþykkt hana. Sætti hann sig ekki við breytinguna getur hann sagt áskrift upp áður en hún tekur gildi.
11.3 Gildandi útgáfa skilmálanna er ávallt birt á www.salarium.is.
12. Lög, varnarþing og samband
12.1 Um skilmálana gilda íslensk lög. Aðilar skulu reyna að leysa ágreining með samkomulagi; takist það ekki skal reka málið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
12.2 Ógildist eitthvert ákvæði skilmálanna halda önnur ákvæði gildi sínu.
12.3 Fyrirspurnir og tilkynningar:
| Efni | Hvert |
|---|---|
| Almennt og uppsögn | mmv@mmv.is · 786 2800 |
| Persónuvernd og öryggi | personuvernd@salarium.is |
| Póstfang | MMV ehf., Lágmúla 5, 108 Reykjavík |
