Um okkur
Launavinnsla sem tekur mínútur, ekki klukkustundir
Salarium er íslenskt launakerfi sem er hannað fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. Markmiðið er einfalt: að skil til Skattsins og lífeyrissjóða séu ekki lengur höfuðverkur um hver mánaðamót.
Hver stendur á bak við Salarium
Byggt af fólki sem þekkir bókhald lítilla fyrirtækja
Salarium er þróað af MMV ehf. Við höfum lengi unnið með litlum og meðalstórum fyrirtækjum í bókhaldi og rekstri, og við sáum að launavinnslan er oft flóknari og dýrari en hún þarf að vera.
Mörg launakerfi eru byggð fyrir stór fyrirtæki með heila launadeild á bak við sig. Lítil fyrirtæki þurfa hins vegar kerfi sem er skýrt, fljótlegt og gerir hlutina rétt í fyrsta skipti.
Auk Salarium veitir MMV bókhaldsþjónustu, smíðar sérsniðinn hugbúnað og er endursöluaðili Uniconta á Íslandi.
Það sem við leggjum áherslu á
Einfalt viðmót
Þú þarft ekki að vera launafulltrúi. Kerfið leiðir þig í gegnum hvert skref.
Rétt í fyrsta skipti
Útreikningar fylgja íslenskum reglum um staðgreiðslu, tryggingagjald og lífeyrissjóði.
Allt á einum stað
Laun, launaseðlar og skilagreinar klárast í sama kerfinu, án tvískráningar.
Við hlustum
Salarium er í stöðugri þróun. Hugmyndir og ábendingar notenda ráða ferðinni.
Fyrirtækjaupplýsingar
Nánar um MMV ehf. á www.mmv.is
